Stakar meðferðir
Gefðu gjafabréf - skoða nánar hér
Það þykir margsannað að nudd, hitameðferðir, slökun og böð bæta jafnt líkamlegt sem andlegt ástand.
|
|
Heilsustofnun hefur sérhæft sig í vatnsmeðferðum og þar starfa sjö löggiltir sjúkranuddarar ásamt þaulvönu starfsfólki í sundlaug og leirböðum. Aðstaðan í nýju baðhúsi er eins og best verður á kosið.
Sjúkranudd
Sjúkranudd er meðhöndlun á mjúkvöðvum líkamans í lækningaskyni. Mjúkvefir eru vöðvar, sinar, liðbönd og himnur. Með því að minnka spennu í vöðvum eykst flutningur súrefnis og næringar til vefjanna.
Partanudd
Meðferð fyrir valda líkamshluta. Hentar vel t.d. við vöðvabólgu í hálsi, herðum og baki. Tími 25 mínútur. Verð 6.400 kr.
Heilnudd
Meðferð fyrir allan líkamann. Spennulosandi og eykur blóðflæði til vöðvanna. Vinnur á vöðvabólgu og þreytu í líkamanum. Tími 50 mínútur. Verð 10.400 kr.
Leirbað
Djúpur hiti slakar á vöðvum og linar verki í stoðkerfi. Hefur góð áhrif á psoriasis og önnur húðvandamál. Gestir sem eru haldnir hjarta- eða lungnasjúkdómum, hafa verið með æðahnúta eða farið í æðahnútaaðgerðir svo og þeir sem eru með nikkelofnæmi geta ekki nýtt sér leirmeðferð. Tími 15 mínútur og 20 mínútur í slökun. Verð 5.700 kr. Hægt er að kaupa 10 tíma kort - upplagt fyrir þá sem vilja nýta sér leirinn, verð 46.800 kr.
Nálastungur
Áhrifamikil meðferð gegn stoðkerfisverkjum, mjóbaksverkjum, vöðvabólgu og verkjum eftir hálshnykk, 30 mínútur. Verð 5.700 kr.
Til að fá sem mest út úr meðferðinni er mjög gott að byrja á því að fara í heitan pott, gufu eða gera léttar æfingar í lauginni og er sú aðstaða innifalin ef farið er í einhverja af eftirtöldum meðferðum. Sloppar, inniskór og handklæði eru einnig innifalin í verði.
Heilsubað
Slakandi bað þar sem hægt er að velja á milli mismunandi olía.
- Kvefbað hefur góð áhrif á óþægindi í öndunarfærum.
- Kamillubað flýtir fyrir að sár grói. Gott fyrir húðina.
- Greninálabað er gott fyrir gigtarsjúklinga eða þá sem eru undir álagi, þjást af streitu og/eða svefnleysi.
- Slökunarbað hefur róandi áhrif og dregur úr streitu, ofþreytu og migreni.
- Gigtarbað linar verki í stoðkerfi og eyðir þeim jafnvel alveg.
Tími 20 mínútur og 20 mínútur í slökun. Verð 3.500 kr.
UPPLÝSINGAR OG PANTANIR Í SÍMA 483 0300 (08-16 VIRKA DAGA). VINSAMLEGAST PANTIÐ MEÐFERÐ A.M.K. MEÐ DAGS FYRIRVARA.





